Spjaldtölvur í Vífilsskóla
Vorið 2011 fékk Vífilsskóli nýjan efnivið til að nota í námi og kennslu. Skólinn keypti iPad spjaldtölvur og hefur mikið og gott starf verið unnið þar sem nemendur og kennarar hafa æft sig í að nota spjaldtölvurnar í kennslu og námi. Margar tilraunir voru gerðar með smáforrit og kennarar og nemendur lögðu sig fram við að skoða hvað hentar best til að nýta í kennslu við Vífilsskóla.
Það er nokkuð víst að með notkun spjaldtölvu eykst framleiðni nemenda til muna þegar unnið er að verkefnum og annarri starfsemi sem tengist skólastarfinu.
Spjaldtölvan gefur nemendum færi á að skoða og kynna sér fræðilegar auðlindir svo sem kennslubækur, heimildir,fjölmiðla ofl. Einnig verður notkun spjaldtölvu til þess að nemendur tileinka sér sjálfstæðari vinnubrögð og góðar starfsvenjur.